Aðalvalmynd

Búðu til snjókorn

Need a Snow Day?

Auglýsing

Engillinn

Lilypie 1st Birthday Ticker

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari

Prófíll

  • Nafn: Dilja Rannveig Bóasdóttir
  • Staður: 8260 Viby J. Århus
  • Heimilisfang: Engtoften 8A 1.t.v. Sími: (00 45) 31626200
  • Hjúskaparstaða: Gift
  • Um mig: Ég er 30 ára Eskfirðingur. Mamma mín heitir Edda og pabbi minn hét Bóas. Hann lést 9. ágúst 2006 úr MND. Bræður mínir heita: Bóas, Kalli og Stjáni...:) Ég bý í Århus Danmörku, með manninum mínum, Sindra Þorkelssyni. Við eigum lítinn strák,hann er okkar fyrsta barn. Hann fæddist 5. nóvember :) Drengurinn hefur ekki enn fengið nafn en hann verður skírður í febrúar Ég kláraði tækniteiknun frá Iðnskólanum i Hafnarfirði 19. desember 2006, þar á undan Listnámsbrautina frá sama skóla. Ég er búin að læra fullt annad líka: stúdent fra ME, lærði frönsku í Montpellier, ítölsku í Perugia & Mími og naglafræðing hjá Kollu. Ég ætla að verða arkitekt þegar ég er orðin stór.

Frá mér

Nú líður að 30......-óskalistinn

Ísland

31. maí 2007 klukkan 23:49
Nú sit ég í stofunni hjá Bóasi bróður á Neskaupsað. Við erum búin að tæma húsið og afhenda lyklana. Mér finnst þetta rosalega skrítið að eiga ekki lengur "heima" á Eskifirði......Gráta
Í fyrramálið keyrum við mæðgur svo suður, og höldum áfram með að pakka og taka upp. Veiii.....! (One, two, three......) NOT!
Ég er nú ekki enn búin að kaupa mér flug aftur út til Danmerkur en plana að fara eftir viku svo þið á höfuðborgarsvæðinu bjallið bara og kíkið í kaffi. Ég er með gamla númerið mitt 866 1604
Heyrumst og sjáumst vonandi
D

D drifið

15. maí 2007 klukkan 20:34
D fokkings drif!
Málið er það að d-drifið í tölvunni minni er með eitthvað ves. Komið á desktoppinn og bla bla bla -Alls alls ekki ánægð með það. Og vegna þessa get ég ekki sett Recovery diskinn minn í og "strauja" tölvuna mína Öskrandi Mjööög pirrandi!!!
Við erum búin að fá sófa og sófa borð í láni að auki við það sem við vorum þegar búin að fá að láni. Svo að í fyrramálið tek ég myndir og skelli á myndasíðuna mína svona til að sýna ykkur "höllina"
Óákveðinn
Svo fer ég náttúrulega að pakka á morgun því ég er að koma heim 17. í smá tíma eins og ég var búin að minnast á hér á blogginu mínu marglesna Glottandi Ég fer strax austur að hjálpa mömmu að pakka dótinu sínu og skipta búinu milli mín og bræðra minna. úff.
Annars er bara allt gott að frétta.

Venlig hilsen fra Smedegade

    p.s. Ef ykkur langar að skrifa mér sendi bréf, er heimilisfangið:
 

Smedegade 23 1.sal
8700 Horsens
Danmark


?

12. maí 2007 klukkan 01:19
Hvernig væri svo að kommenta?

Rigning

11. maí 2007 klukkan 10:14
Sindri á leið í skólann í grenjandi rigningu í pollagallanum sínum

Nágrannar

11. maí 2007 klukkan 06:46
í gær hafði ég hugsa mér að skrifa um "Alú etta" en Sindri var á undan: http://torkelsson.blogspot.com/

Thailand - myndir

08. maí 2007 klukkan 07:33
Jamm eins og þið vitið er Edda mín flutt til Thailands. Gráta en samt Brosandi. Sakna þeirra mæðgna bara, þessvegna grenjukallinn. Maður verður nú að samgleðjast. Þær eru á Lanta sem er eyja í suður Thailandi, algjör paradís. Jim er staddur þarna og sendir mér reglulega myndir af lilluni minni. Þessar myndir eru náttlega alveg óborganlegar eins og Jasmín. Myndir komnar á photobucket síðuna mína. (linkur f ofan klukkuna) Sakna ykkar!

maí

07. maí 2007 klukkan 09:37
Enn og aftur erum við flutt.Hlæjandi En núna í íbúðina okkar hér á Smedegade 23. Set inn myndir af íbúðinni þegar við erum búin að koma okkur fyrir. Það eru töluverð viðbrigði að fara úr 18 fm í 68 fermetra, svolítið tómlegt hér hjá okkur. Minimalisminn hafður í hávegum hér á SmedegadeGlottandi. Já, ef þú lest þetta og átt sófa eða eitthvað innbú sem þú vilt losna við þá máttu endilega hafa samband við mig. Ég er til í að kíkja á allt. -þú þarft að búa hér í Horsens.
Maja kom í heimsókn til okkar um helgina. Það var gaman.
Við ákváðum að hafa ekki innflutningspartý um helgina þar sem við erum nú ekki alveg búin að koma okkur fyrir. Höfðum samt upphitun = smá partý.
Bleiksárhlíðin er seld eða svona næstum og ég er að koma heim til íslands til að tæma húsið, um miðjann mánuðinn. Mér finnst það erfitt. Einhver annar er að fara búa í Bleiksárhlíð 10. Þarna hef ég átt heima alla mína ævi!! Sko alveg frá því ég fæddist. Ég er ekki alveg að fíla þetta!
En svo fer ég til Reykjavíkur og tek til eitthvað dót á bretti til að senda hingað út. Þvottavélina og svona.
Held ég ætli að selja sófann minn. SÓFI TIL SÖLU!! 3+1 og skemill
nóg í bili
D