blogga....
Ætla skella inn færslu síðar í dag.
NOTA BENE: ný könnun
Afmćlisbarn
-eda á ég að segja í gær, það er nú komið fram yfir miðnætti...?Og hamingjuóskir til ykkar beggja með trúlofunina!!!
Elsku pabbi minn
Líf mitt hefur breyst mikið síðan ég bloggaði síðast.
Eins og þið flest vitið lést elsku besti pabbi minn miðvikudaginn 9. ágúst á sjúkrahúsinu á Neskaupstað. Pabbi var greindur með MND fyrir rúmum 2 árum og hann lést úr sjúkdómnum. Þetta hefur verið mjög erfiður tími og ég veit ekki hvað hefði orðið um mig ef ég hefði ekki verið umkringd þessari yndislegur fjölskyldu sem ég á, og góðum vinum á sorgarstundu.
Ég vil aftur þakka ykkur öllum fyrir stuðninginn.
Þó missi ég heyrn og mál og róm
og máttinn ég þverra finni,
þá sofna ég hinzt við dauðadóm,
ó, Drottinn, gef sálu minni
að vakna við söngsins helga hljóm
í himneskri kirkju þinni.
Elsku besti pabbi minn. Ég hugsa til þín á hverjum degi og sakna þín svo sárt.
Þú varst mér svo góður og ég er svo þakklát fyrir þann tíma sem við fengum saman. Minningarnar eru ómetanlegar. Þú ert og verður ávallt með mér í hjarta mínu og huga.
Ég elska þig!
Eigi stjörnum ofar Hvar sem þrautir þjaka,
Á ég þig að finna, Þig ég heyri biðja:
Meðal bræðra minna Viltu veikann styðja,
Mín þú leitar, Guð. Vera hjá mér þar?
Nær er blærinn blómið, Já, þinn vil ég vera,
barn á mínum armi, vígja þér mitt hjarta,
ást í eigin barmi, láta ljós þitt bjarta
ertu hjá mér, Guð leiða, blessa mig.
1978
Það var aldeilis glatt á hjalla í gær. Pabbi átti afmæli, varð 66 ára.
Til hamingju elsku bezti pabbi minn!!
Bræður mínir komu með eiginkonurnar og afkvæmin í gærkvöldi og það var nú meira fjörið. Amma er hjá okkur þessa dagana svo hún fékk aldeilis skamtinn af barnabörnum barnabarnabörnum og barnabaranabarnabarni
Við mamma og Bóas bróðir og hans familí gáfum pabba rafmagnshitara á svalirnar svo það verður bærilega hægt að viðra sig á svölunum í framtíðini.
En já, svo á ég afmæli í dag
í dag ætla ég ekki að gera neitt sérstakt. Éta köku sem ég verð með í kaffinu hér í vinnuni (já maður skellti sko í eina í gærkvöldi) en svo hef ég ekki planað meira en það. Enda var nú heljarinnar veisla í gær.
Loksins smoksins
Ég er ekki alveg sátt..... -ég var búin að skrifa voða fína og laaanga færslu en hún vistaðist ekki. Hef verið algjörlega miður mín og ekki fengið mig í að blogga aftur en nú ætla ég að reyna.
Í fréttum er þetta helst að Bjössi ætlar að vera með ammælisparty á föstudaginn, en hann á samt ekki afmæli fyrr en 22 svo hann fær enga afmæliskveðju fyrr en þá. En ég ætla skella mér í Reykjavíkina á fimmtudaginn og vera viðstödd þennan stórviðburð 
Ég kem heim með mjög dýrmætan farangur, Jasmín ætlar að koma með frænku sinni austur og vera í 2 vikur hjá ömmu sinni og afa og kannski eitthvað hér.
Það sem er svo næst á dagskrá er Borgarfjörður Eystri 29 júlí, Emiliana og Belle and Sebastian. Ætli ég haldi ekki upp á afmælið mitt í leiðini. Ég er meira að segja búin að fá lánaðan tjaldvagn hjá Bóasi bróður svo ég verð ansi vígaleg þegar ég keyri inn í plássið á golfinum mínum, aka Kúturinn. Þessi tjaldvagn er nú samt hundgamall og ekkert flottur en mér er nú alveg slétt sama um það. Planið er að tjalda í túnfætinum hjá Helgu og Bjössa. Uss þetta verður nú eitthvað.
Við Hanna S og Agla skelltum okkur á ball á laugardaginn. Dönsuðum eins og vindurinn
Það var mjög gaman, því ég hef nú ekki mikið farið á böll í sumar. En sumarið hefur þó ekki verið alveg viðburðalaust því ég fór nú til Rvk með bílinn hennar mömmu strax fyrstu helgina mína hér. Og ég fór líka á Akureyri 17. júní og það var nú meiri gleðin. Og rúsínan í pylsuendanum var þegar Guðlaug kom í bæinn. Þá var nú svei mér gaman. Guðlaug, takk fyrir frábæran dag 
Vó ég hef annars ekki mikið að segja. Vildi bara fara drífa einhverju hérna inn svo fólk hætti nú ekki alveg að kíkja á síðuna mína og KOMMENTA. 
AAAAAAAAAAAAAAAAAAARRRRRRRRRRRRRRRRRRRGGGGGGGGGGGGGGGGGGGGGGGGGGGGgg

Íris TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!


