Aðalvalmynd

Búðu til snjókorn

Need a Snow Day?

Auglýsing

Engillinn

Lilypie 1st Birthday Ticker

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari

Prófíll

  • Nafn: Dilja Rannveig Bóasdóttir
  • Staður: 8260 Viby J. Århus
  • Heimilisfang: Engtoften 8A 1.t.v. Sími: (00 45) 31626200
  • Hjúskaparstaða: Gift
  • Um mig: Ég er 30 ára Eskfirðingur. Mamma mín heitir Edda og pabbi minn hét Bóas. Hann lést 9. ágúst 2006 úr MND. Bræður mínir heita: Bóas, Kalli og Stjáni...:) Ég bý í Århus Danmörku, með manninum mínum, Sindra Þorkelssyni. Við eigum lítinn strák,hann er okkar fyrsta barn. Hann fæddist 5. nóvember :) Drengurinn hefur ekki enn fengið nafn en hann verður skírður í febrúar Ég kláraði tækniteiknun frá Iðnskólanum i Hafnarfirði 19. desember 2006, þar á undan Listnámsbrautina frá sama skóla. Ég er búin að læra fullt annad líka: stúdent fra ME, lærði frönsku í Montpellier, ítölsku í Perugia & Mími og naglafræðing hjá Kollu. Ég ætla að verða arkitekt þegar ég er orðin stór.

Frá mér

Nú líður að 30......-óskalistinn

Búðu til snjókorn

04. desember 2009 klukkan 11:49
Need a Snow Day?

Hver veit????

14. september 2009 klukkan 19:35


Hver þekkir litlu stúlkuna á þessari mynd af síðuni hjá Helga Garðars?
Það er Fjóla Ólafs sem situr með hana í fanginu

Vinsamlegast fáið mömmu eða ömmu til að kíkja á myndina og látið mig vita ef þið komist að hver stúlkan er



Nafnið

26. febrúar 2009 klukkan 23:20
Yndislegi sonur minn hefur fengið nafn. Eða réttara sagt er búið að skíra hann og nafnið orðið opinbert. Engillinn fékk nafnið Eldar Bóas. Í tilefni af því breyttum við linknum á síðuni hans úr sindrason í eldarboas. linkurinn er því: http://www.nino.is/eldarboas/
Skírnin gekk vel og við viljum þakka öllum kærlega fyrir fallegar og góðar skírnargjafir. Eldar var skírður hjá Séra Davíð í Eskifjarðarkirkju. Eldar var rosalega góður, leist greinilega bara vel á þetta húllumhæ allt saman.
Við erum enn stödd á austurlandinu og verðum hér fram á sunnudag væntanlega, við erum ferlega róleg, erum ekki enn búin að panta okkur flugfar... Tongue out Enda erum við í frí og ekkert að flýta okkur.
Myndir úr skírn verða settar á síðuna hans Eldars Bóasar á næstu dögum og við þyggjum að sjálfsögðu allar myndir sem voru teknar í skírninni. Aldrei nóg af myndum.

Dilja

Eldar Bóas

ísland

09. febrúar 2009 klukkan 23:49

Við erum komin til íslands til að skíra litla prinsinn okkar.
Hann verður skírður í Eskifjarðarkikju sunnudaginn 22. febrúar. Nafnið verður leyndarmál þangað til ;) Mikið hlakka ég til að geta farið að kalla barnið nafinu sínu því maður var rétt komin í gang með að kalla hann því þegar maður þarf að fara segja litli kútur aftur.
Allt hefur gengið vel með hann og okkur síðan ég skrifaði síðast :)
Ég er netlaus og símalaus hér á íslandi fyrir utan að við erum bæði með dösku númerin okkar.... (00 45-31626200) Ef ég fæ lánaðann gsm síma kaupi ég mér nú samt frelsisnúmer og pósta því þá hér og á facebook ef af því verður. Við verðum í Kópavoginum fram að næstu helgi og þá förum við austur . Síminn hjá mömmu er 476 1361 ef þú þarft að ná i mig Laughing
jæja ég er nú í heimsókn hjá henni Birnu minni svo ég ætla að hætta þessu tölvurápi.
Bæjó
Dilja

GLEÐILEGT NÝTT ÁR

01. janúar 2009 klukkan 22:44
Gleðilegt nýtt árið öll. Takk fyrir það gamla
Myndir á myndasíðunni minni

Gleðlileg jól

24. desember 2008 klukkan 08:35
Jólakveðjan í ár er lesin í Ríkisútvarpinu.Jólakort því ekki send þetta árið.
Lestur jólakveðja hefst á Þorláksmessu kl. 13 og verður byrjað að lesa almennar kveðjur.


Dilja Sindri og Sonur




Biljana Djurdjevic 'The last days of Santa Claus'

Halló

30. nóvember 2008 klukkan 23:13
Hæ hæ
Ég er ekkert að ná að blogga neitt. Sá litli á mig alla þessa dagana. Ég veit ekki af fyrr en það er aftur komið kvöld og tími til að fara hvíla sig. Ekkert mikið að frétta, við sofum bara og drekkum.  Hann vex hratt, okkur finnst litli snáðinn blása út. En jæja hann þarf að fá meira að drekka núna svo ég verð að láta þetta duga í bili.

Prinsinn

14. nóvember 2008 klukkan 14:58
Yndislegi sonur okkar er orðin 9 daga gamall. Þetta líður ótrúlega hratt, mér finnst ekki svo langt síðan hann kom í heiminn. Ég er svo hamingjusöm með hann að orð fá því ekki lýst!! Þvílík hamingja.
Hann kom aðeins of snemma í heiminn eins og mig grunaði að hann mundi gera. En ég var þó viðbúin því að þurfa bíða til 7. des. eftir honum, og vildi ekki "jinx"-a því að hann kæmi í fyrra fallinu með því að vera ekki undirbúin bið eftir honum.
Hann kom í heiminn 5. nóvember kl 01:49 og ég var því gengin með hann 37 vikur og 6 daga. Fæðingin gekk vel fyrir utan að það var smá vesen að koma honum í heiminn svona undir lokin. Ég missti vatnið klukkan 17:30 og við voum komin upp á Skejby Sjúkrahús kl 19:35, Hríðarnar voru stutt á milli og útvíkkun gekk hratt fyrir sig. Í byrjun fór ég í heita sturtu og fékk þá lyfjakokteil. Mér fannst hann ekki duga lengi og fljólega eftir sturtuna fór ég baðkarið. Það linaði verkina til að byrja með en eftir 45 mín. þá var ég orðin viðþolslaus í baðinu. Mig var farið að langa í meiri verkjastyllingu. Útvíkkunin var mæld og ég var komin með 9.5 cm í útvíkkun sem þýddi að það var orðið of seint fyrir mænudeyfinguna. Ég sem hékk svo á því að þetta yrði allt í góðu lagi, fengi bara mænudeyfingu og allt yrði í gúddí. Ég var mjög svekkt!! Ég fékk hláturgas sem var betra en ekki neitt en það var bara meðan ég var að ná 10 cm. Ég var komin með 10 í útvíkkun um miðnætti og fór að ýta honum í heiminn en þá styttust hríðarnar og lengdist á milli þeirra þegar farið var að ýta honum í heiminn. Ég fékk dripp og hríðarnar jókust aftur og hann þokaðist í niður fæðingarveginn en ekki nógu hratt og svo hæðist svo mikið á hjartslættinum hjá prinsinum að það var ákveðið að taka hann með sogklukku. Ég hef nú aldrei vitað annað eins.... sogklukka lítur nú bara út eins og eitthvað tól frá miðöldum. Frekar ógnvekjandi! Prinsinn var nú frekar slappur eftir þetta erfiða ferðalag og barnalæknirinn ákvað að hann yrði nóttina á vökudeildinni. Hann jafnaði sig þó hratt og stóð sig vel um nóttina, fullfrískur og hann var útskirfaður af vökudeildinni eftir hádegismat daginn eftir. Hann jafnaði sig eiginlega á fyrstu 30 mín. eða svo. Pabbinn skrifaði fæðingarsöguna á síðu prinsins. Við fengum að vera á sjúkrahúsinu fram á sunnudag sem var reyndar alveg yndislegt. En við vorum samt mjög ánægð með að fara heim til okkar. Edda amma kom svo til okkar á sunnudagskvöldið og það er alveg frábært að hafa ömmu hjá okkur. Amma ætlaði reyndar að vera viðstödd fæðinguna en hnoðranum okkar lá svo á að hann gat ekki beðið til 20. nóv.
Við erum búin að hafa það ofsalega gott heima. Litli engillinn er ofsalega vær og góður, sefur og drekkur. Hann fór í heyrapróf á fimmtudaginn sem hann stóðst með príði og fæðingarhjúkrunarkonan okkar kom að líka á fimmtudaginn. Hann stendur sig vel, búinn að lengjast um 2 cm og komin í fæðingarþyngd og rúmlega það, 3 kíló vegur hann. Börn ná fæðingarþyngd yfirleitt á 10-14 dögum svo drengurinn nærist vel.
Móður heilsast vel miðað við aldur og fyrri störf. Er að sjálfsögðu enn þreytt og aum en ég reyni að hvíla mig og fara vel með mig.

Vatnið farið

04. nóvember 2008 klukkan 17:34

Já vatnið fór núna klukkan 17:30

Við erum á leiðinni upp á sjúkrahús en ég vona ég fái að koma heim og vera hér heima þar til verkirnir eru orðnir 5 mín á milli. En við sjáum til hvað ljósurnar á Skejby sjúkrahúsinu segja og hvernig þetta þróast.

Ég vaknaði aðfaranótt laugardags (minnir mig) með verki og var að fá verki yfir daginn en svo var það bara búið. Þetta hafa greinilega verið fJá vatnið fór núna klukkan 17:30

Við erum á leiðinni upp á sjúkrahús en ég vona ég fái að koma heim og vera hér heima þar til verkirnir eru orðnir 5 mín á milli. En við sjáum til hvað ljósurnar á Skejby sjúkrahúsinu segja og hvernig þetta þróast.

Ég vaknaði aðfaranótt laugardags (minnir mig) með verki og var að fá verki yfir daginn en svo var það bara búið. Þetta hafa greinilega verið fyrirvaraverkir alvarlegri en við héldum því nú er fæðingin farin í gang :)

Ég er mjög spennt og svolítið stressuð. En ég leyfi mér ekkert að vera of stressuð, ég trúi nefninlega á verkjalyf.

Jæja ég ætla fara gera mig klára og kíkja á sjúkrahúsið. Við reynum að láta vita af framgangi mála

Komin færsla á síðuna hans litla





Barnasíða

02. nóvember 2008 klukkan 21:58

Jæja gott fólk. Ég er búin að opna síðu fyrir lillann. Ég er nú ekki búin að setja mikið inn á síðuna en þetta er aðallega gert svo það verði hægt að byrja strax að hlaða inn myndum af prinsinum þegar hann kemur í heiminn.